Lilypie Kids Birthday tickers

25.5.09

3 ára!


Sæl öll

Núna er ég orðinn 3 ára gamall. Mamma mín og pabbi eru varla að trúa hvað ég er orðinn stór og duglegur, þeim finnst tíminn líða svo hratt. Ég hélt uppá afmælið mitt nýlega, þurfti að fresta einu sinni vegna þess að ég var veikur á sjálfan afmælisdaginn.

Fjölskyldunni var boðið í brunch og var rosalega gaman að hitta alla og knúsa. Síðar sama dag komu vinir mínir og foreldrar þeirra og það var sko heldur betur mikið fjör. Ég varð ægilega hissa þegar leynigestur kom í heimsókn. Leynigesturinn var Íþróttaálfurinn sem ég held svo mikið uppá. Við gerðum alls konar æfingar saman og vorum við að hjálpa honum að fá orkuna sína aftur eftir að Glanni glæpur plataði hann til að borða sykurepli. En eftir að við vorum búin að hjálpa honum þá gat hann gert 2 heljarstökk í stofunni heima hjá mér!

Ég fékk mikið af fínum og skemmtilegum pökkum og þakka kærlega fyrir mig.

Hér til hliðar má sjá myndir, ef þú veist ekki notendanafnið og lykilorðið sendu þá póst á mömmu á helgarun hjá gmail.com.

Kveðja, Hlynur.

1 comment:

Karitas Bergsdóttir said...

Það er aldeilis afmælisveisla.
Til hamingju með 3 ára afmælið um daginn.
Kv.Karitas og co