Lilypie Kids Birthday tickers

25.9.06

Gestabókin og nýjar myndir

Skrifið endilega í gestabókin mína. Það er gert með eftirfarandi hætti:

1. Smellið á "Sign my guestbook - Click here" hnappinn fyrir neðan Gamalt og gott.
2. Smellið á "Post".
3. Fyllið inn í reitina nafn, netfang, heimasíða, borg og skilaboð.
4. Sláið inn stafina sem eru í svarta kassanum í hvíta kassann.
5. Veljið svo "Post entry" til að klára færsluna.

Svo er mamma búin að setja inn nýjar myndir af mér sem eru flokkar eftir mánuðum einnig eru myndir frá París og 1. júlí. Annars er allt mjög gott að frétta og ég er að fara í 5 mánaða skoðun á morgun. Það verður virkilega spennandi að sjá hvað ég er orðinn þungur og langur, einnig á ég á fá sprautu gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Hib og mænusótt. Ég var rosalega duglegur síðast og grét ekki og verð það örugglega aftur.

Heyrumst aftur fljótlega

kveðja, Hlynur

No comments: