Lilypie Kids Birthday tickers

22.9.06

Sæl og blessuð öll sömul

Ég segi nú bara allt það besta og er sko í rosalegu stuði þessa dagana. Ég vill taka í allt og smakka á öllu og er farinn að ýta mér áfram til að ná í hlutina ef þeir eru ekki alveg hjá mér. Ég velti mér um allt og finnst fátt skemmtilegra þegar annað hvort mamma eða pabbi liggja hjá mér og leika við mig.

Í kvöld erum við svo að fara í rosalega fína innflutnings grillveislu hjá Ingu "frænku" og Árna "frænda" þar sem ég kem til með að hitta vinkonur mínar þær Eyrúnu Ólöfu og Láru Dís og vin minn hann Magnús Breka og svo auðvitað fullt af fleiri "frænkum" og "frændum".

Hafið það nú gott og njótið góða veðursins

kveðja Hlynur

No comments: