Lilypie Kids Birthday tickers

3.11.06

Nýjar myndir

Jæja þá er mamma búin að setja inn nýjar myndir frá september, október og skírnarmyndir. Einnig er hún búin að breyta útlitinu á myndunum. Sendið mömmu póst á helgarun hjá gmail.com til að fá notendanafn og lykilorð.

Annars er allt gott að frétta. Ég var að vísu smá veikur í gær og fékk dáldinn hita og var svoldið lumpinn en núna líður mér betur og verð vonandi hress sem fyrst. Ég fór í 6 mánaða skoðun í vikunni og fékk sprautu. Ég grét smávegis en jafnaði mig fljótt. Einnig var ég viktaður og mældur. Ég er orðinn 10,3 kg og 70,5 cm. Læknirinn var svo ánægður með mig og sagði að ég væri flottur strákur (mömmu og pabba finnst það sko líka, tíhí). Ég er kominn með 2 tennur og mamma og pabbi ætla að fara að kenna mér að nota tannbursta, það verður spennandi. Ég er líka farinn að borða á fullu og finnst banani svakalega góður.

Knús, Hlynur.

No comments: