Lilypie Kids Birthday tickers

24.7.08

Sumarfrí


Sæl öll

Jæja þá er ég búinn að vera í sumarfríi í nokkrar vikur. Ég hætti á Sólgarði 4. júlí síðastliðinn og var svo í fríi með mömmu til 18. júlí. Við fórum í skemmtilegt ferðalag saman í sveitina, Kálfafell. Langamma Helga kom með okkur en varð svo eftir hjá bræðrum sínum. Trausti frændi og Bryndís Helga frænka voru í heimsókn á sama tíma og skemmtum við okkur konunglega saman. Ég sá beljur, kindur og kisur og fékk að keyra traktor sem var nú bara endalaust gaman. Ég er svo mikill tækjakall (eins og pabbinn minn)! Frá 19. er ég síðan búinn að vera í fríi með pabba mínum. Mamma þarf að vera dugleg á bókasafninu hluta úr degi en kemur svo heim síðdegis til að stússast með okkur feðgunum. Við erum búin að vera dugleg að fara saman í sund og hitta vini okkar og fjölskyldur.

Mamma var að setja inn nýjar myndir frá júlí og má finna þær hérna til hliðar. Ef þú veist ekki notendanafnið og lykilorðið sendu þá póst á helgarun hjá gmail.com.

Sumarkveðja,

Hlynur

No comments: